Kjörstaðir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar eru tveir í Fjallabyggð, annars vegar í Ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði og hins vegar í húsnæði Menntaskólans á Tröllaskaga í Ólafsfirði.

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst 2026 liggur frammi til sýnis í Ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði og á Bókasafni Fjallabyggðar við Bylgjubyggð í Ólafsfirði.

Kjósendum er bent á nánari upplýsingar á www.kosning.is