Covid-19 faraldurinn hefur verið á undanhaldi síðustu vikur en virðist nú vera að taka aftur við sér því um 200 ný smit eru nú að greinast daglega innanlands. Þrjátíu eru inniliggjandi á LSH með Covid-19, þar af tveir á gjörgæslu og annar þeirra í öndunarvél. Tveir eru inniliggjandi á Sjúkrahúsinu á Akureyri með Covid-19.
Vegna þessa er talið nauðsynlegt að takmarka heimsóknartíma á Sjúkrahúsinu á Akureyri við einn gest á dag til hvers sjúklings og að hámarki í eina klukkustund. Gestir skulu bera grímu.
Minnt er á að auk Covid-19 er ýmislegt annað í gangi, parainfluensa og fleira auk þess sem apabóla hefur borist til landsins. Það er því full ástæða til að fara varlega og viðhafa almennar smitvarnir
Heimild: sak.is