Eins og undanfarin ár þá eru tvær kjördeildir í Fjallabyggð þegar kosið verður til sveitarstjórnarkosninga laugardaginn 16. maí næstkomandi. Í Ólafsfirði er kosið í Menntaskólanum á Tröllaskaga og á Siglufirði er kosið í Ráðhúsi Fjallabyggðar. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.
Ólafsfjörður – Menntaskólinn á Tröllaskaga
Þar kjósa íbúar með lögheimili í Ólafsfirði – kjörfundur hefst kl. 10:00.
Siglufjörður – Ráðhús
Þar kjósa íbúar með lögheimili á Siglufirði – kjörfundur hefst kl. 10:00.
Kjörfundi má slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er samþykk því, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.
Kjörfundi skal slitið eigi síðar er kl. 22:00.
Unnt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum Sýslumanns Norðurlands eystra, sjá upplýsingar um opnunartíma á vef sýslumanna.
Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði og hefst talning kl. 23:00 nema aðstæður breytist.