Sinead Kennedy hefur spilað á fiðlu síðan hún var sjö ára. Tónlistin sem hún spilar í dag er hefðbundin írsk danstónlist. Hún fór ekki í hefðbundið tónlistarnám en lærði að spila hjá nágrönnum sínum og ættingjum í Co. Meath and Co. Donegal, Ireland.
Sinead dvelur nú í annað sinn í þrjá mánuði í Listhúsinu í Ólafsfirði og vinnur þar að málverkum og tónlist.
Fimmtudaginn 21. júlí kl. 20:00 verður Sinead með uppákomu í Alþýðuhúsinu á Siglufirði þar sem hún í nálægð við áhorfendurna spilar á fiðluna og segir sögur.

medium_sinead_kennedy_web700