Undanfarnar vikur hafa verktakar unnið að breytingum á Tjaldsvæði Fjallabyggðar í Ólafsfirði. Verið er að klára að malbika stíga og vegi innan tjaldsvæðis og er svæðið farið að taka á sig nýja og breytta mynd. Mjög áhugavert að fylgjast með þessu stóra verkefni og tjaldgestir eru án efa spenntir að sjá þessar breytingar sem unnið er að.

Það skal tekið fram að tjaldsvæðið er opið í sumar þrátt fyrir þessa vinnu.

Myndirnar koma frá umsjónarmanni tjaldsvæðisins.