Akureyrarbær hefur kynnt drög að deiliskipulagi fyrir tjaldsvæðisreitinn við Þórunnarstræti. Samþykkt hefur verið að breyta reitnum úr tjaldsvæði í fjölbreytta íbúðabyggð. Lögð er áhersla á að skapa nútímalegt og sjálfbært hverfi sem fellur vel að núverandi byggð og umhverfi.

Skipulagsferlið hefur staðið yfir í nokkur ár og er unnið í nánu samstarfi við íbúa, hagsmunaaðila og sérfræðinga. Á kynningarfundum og í gegnum samráðsvettvanginn „Okkar Akureyri“ hafa borist fjölmargar ábendingar og tillögur sem hafa mótað lokatillöguna.

Helstu áhersluatriði í nýju skipulagi eru eftirfarandi:

  • blönduð byggð
  • íbúðir fyrir 60 ára og eldri
  • þétt og lágreist byggð með bílakjallara
  • fjölbreytt rými
  • græn svæði sem stuðla að betri lífsgæðum íbúa

Greinargerð um skipulagið má lesa hér

 

Deiliskipulagsuppdrátt sem sýnir breytinguna má nálgast hér og skuggavarpið má sjá hér

Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér breytinguna og senda inn ábendingar þar sem fram kemur nafn og kennitala í gegnum Skipulagsgátt.

Frestur til að koma ábendingum á framfæri er veittur til 27. febrúar 2025.