Gestir tjaldsvæðisins í Ólafsfirði gista á nýju túni í sumar á meðan vinna er við aðal svæðið. Í nótt voru nokkrir húsbílar, hjólhýsi og tjöld á svæðinu og nóg pláss fyrir alla. Nú kl. 7:00 í morgun var tæplega 11 stiga hiti og fallegt veður í Ólafsfirði. Hitinn fór minnst í 8,4 gráður í nótt á svæðinu.
Tekið er á móti útilegukortinu á tjaldsvæðinu í Ólafsfirði.