Í dag var opið á skíðasvæðinu á Ólafsfirði í Tindaöxl en svæðið opnaði kl. 13. Aðstæður voru flottar, lautur þjappaður snjór á svæðinu. Eins og vaninn er þegar svæðið á Ólafsfirði er opnað er frítt í lyftuna. Skíðagöngubrautin Bárubraut var einnig troðin og opin og hægt að velja sér braut eftir getu, bæði trimmarar og lengra komnir.
Gert er ráð fyrir að Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði opni svo um næstu helgi.