Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga hefur samþykkt að ráða Þorvald Eyfjörð Kristjánsson tímabundið í eitt ár í 50% stöðugildi skólastjóra og 50% kennslu og Hauk Orra Kristjánsson, núverandi kennara skólans tímabundið í eitt ár í 50% stöðugildi aðstoðarskólastjóra. Tónlistarskólinn starfar í Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð.

Þorvaldur er núverandi aðstoðarskólastjóri skólans.

Magnús G. Ólafsson er fráfarandi skólastjóri skólans.