Vegna veikinda starfsfólks og skorts á heilbrigðisstarfsmönnum þarf að grípa til tímabundinnar skerðingar á starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri og verður valkvæðum skurðaðgerðum fækkað tímabundið m.a. til þess að létta á álagi á gjörgæsludeild. Það er von stjórnenda sjúkrahússins að þessi aðgerð hafi ekki langvarandi áhrif en búast má við því að biðlistar lengist lítillega og eru þeir skjólstæðingar sem þetta snertir beðnir um að sýna því skilning.
Ástæðuna má m.a. rekja til óvenju mikilla veikinda starfsfólks síðustu vikur ásamt því að ekki hefur tekist að manna sem skyldi en þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar eftir heilbrigðisstarfsfólki gengur illa að manna bæði fastar stöður og eins stöður til afleysinga og ljóst að skortur á heilbrigðisstarfsfólki hefur víðtæk áhrif. Þess má einnig geta að mikið hefur verið um innlagnir sjúklinga vegna hinna ýmsu öndunarfærasjúkdóma sem hafa verið í samfélaginu.
Veikindi starfsfólks og aukinn fjöldi innlagna hafa áhrif á starfsemina á öllum deildum sjúkrahússins.