Til að fyrirbyggja möguleika á smitum hefur verið ákveðið að setja á grímuskyldu heimsóknargesta á legudeildum, bráðamóttöku og göngudeild lyflækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Heimsóknargestir sem eru með einkenni sem geta samrýmst öndunarfærasýkingu mega ekki koma í heimsókn á eftirfarandi deildir.
Einnig er mikilvægt að huga að því hvort einhver í nærumhverfi sé með smitandi sjúkdóm.
Eftirfarandi á við um:
– Lyflækningadeild
– Skurðlækningadeild
– Barnadeild
– Fæðingadeild
– Geðdeild
– Gjörgæsludeild
– Göngudeild lyflækninga
– Bráðamóttöku
– Legudeild Kristnesspítala