Norðurþing óskar eftir tilboðum í skólaakstur við grunnskólana í Norðurþingi skólaárin 2013-2017.
Um er að ræða skólaakstur að Öxarfjarðarskóla frá Kópaskeri og Kelduhverfi og úr Reykjahverfi, annars vegar til Húsavíkur og hins vegar á Hafralæk. Gerður verð samningur um hverja leið fyrir sig. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Norðurþings, Ketilsbraut 7-9 á Húsavík eða verða send í tölvupósti sé þess óskað. Tilboðum skal skilað á sama stað í lokuðu umslagi, þannig merktu: „Norðurþing, skólaakstur í Norðurþingi 2013-2017, TILBOГ.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Norðurþings, Ketilsbraut 7-9, föstudaginn 28. júní kl. 14:00, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. (www.nordurthing.is)