Nú í morgun, um kl. 11:00 gekk óveður yfir Siglufjörð, með gríðarlegum vindstrengjum. Töluvert eignartjón hlaust af óveðrinu. Fóru meðal annars þrjú þök af húsum, tveimur íbúðarhúsum og einu iðnaðarhúsnæði. Skemmdir urðu á fleiri húsum sökum foktjóns, aðallega vegna húsþakanna. Einnig urðu skemmdir á bifreiðunum og lausamunum. Minniháttar verkefni voru einnig á Ólafsfirði og á Húsavík.

Viðbragðsaðilar og bæjarbúar unnu að ýmsum verkefnum í dag á Siglufirði.
Gluggar fuku úr húsi og skemmdir urðu á gluggum, eftirvagnar og ruslagámar fuku, vatn lak inn í hús, rafmagnskassi opnaðist í veðurofsanum, girðing var í hættu á að fjúka, þakplötur losnuðu, skriða féll við götuna svo ljósleiðari varð berskjaldaður svo fátt eitt sé nefnt.

Núna er búið að lægja og verið að hreinsa upp eftir tjónið.

Búist er við versnandi veðri á Norðurlandi eystra með norðan hvassviðri og snjókomu þegar líður á kvöldið og er viðbragð í gangi vegna þess.