Knattspyrnufélag Fjallabyggðar hefur á síðustu vikum samið við þrjá nýja erlenda leikmenn fyrir sumarið. Leikheimild og félagskipti voru að renna í gegn hjá KSÍ í dag. Þeir verða því allir klárir fyrir fyrsta leik ef formið verður í lagi.
Þetta eru þeir Brendan David Koplin, fæddur árið 1999 og lék síðast á Ítalíu en er frá Bandaríkjunum. Hann er hávaxinn framherji, 188 cm og er hægri fótar maður.
Svo er það Chad Henry Smith sem er einnig Bandaríkjamaður, fæddur árið 2003. Hann er markmaður og kemur úr Háskólafótboltanum í Bandaríkjunum. Hann er frá Cincinnaty í Ohio
Að lokum er það Federico Ignacio Russo Anzola. Hann er fæddur árið 2000 og frá Venesúela. Hann er varnarsinnaður leikmaður.
Enginn af þeim hefur spilað á Íslandi áður en vonandi koma þeir til með að styrkja liðið í 3. deildinni í sumar.