Mun sjálfur leika aðalhlutverkið
Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á glæpasögunni Snjóblindu eftir Ragnar Jónasson og voru samningar þess efnis undirritaðir á dögunum. Þorvaldur Davíð er hvað þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndinni Svartur á leik. Ragnar Jónasson sendi Snjóblindu frá sér árið 2010 og var hún útnefnd ein af fjórum bestu skáldsögum haustsins í Þýskalandi í fyrra af tímaritinu Gala. Nýlega kom út þriðja bók Ragnars um Ara Þór lögreglumann og nefnist hún Rof og gerist á Norðurlandi, líkt og Snjóblinda, nánar tiltekið í eyðifirðinum Héðinsfirði. Samningurinn miðast við að Þorvaldur Davíð leiki sjálfur Ara Þór, aðalpersónu bókarinnar, ásamt því að vera einn af framleiðendunum.
Þorvaldur Davíð varð fyrsti Íslendingurinn til að komast inn í leiklistardeild hins virta Julliard-háskóla í New York þaðan sem hann útskrifaðist í fyrra. Hann hlaut Menningarverðlaun American Scandinavian Society árið 2010 og fékk Robin Williams styrk sem skólinn veitir. Hann lék aðalhlutverkið í kvikmyndinni Svartur á leik sem frumsýnd var fyrr á þessu ári og er önnur tekjuhæsta mynd Íslandssögunnar.
Snjóblinda eftir Ragnar Jónasson kom út árið 2010. Á Siglufirði finnst ung kona blóðug og hálfnakin í snjónum, nær dauða en lífi. Aldraður rithöfundur deyr á grunsamlegan hátt á æfingu hjá áhugaleikfélagi bæjarins, daginn fyrir frumsýningu. Ari Þór Arason, nýútskrifaður lögreglumaður, reynir að komast að því hvað er satt og hvað er logið í samfélagi þar sem engum virðist hægt að treysta. Einangrunin, myrkrið og snjórinn þrengja að honum, óttinn nær tökum á bæjarbúum og gleymdir glæpir fortíðar koma upp á yfirborðið.
Á myndinni eru Ragnar Jónasson, Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Bjarni Þorsteinsson, útgáfustjóri Veraldar.