Guðrún Ingimundardóttir tónlistarkennari á Siglufirði er höfundur bókarinnar Þjóðlagakver sem er það fyrra af tveimur með þjóðlögum og kvæðalögum frá Þingeyjarsýslum við ljóð eftir þingeysk skáld. Síðara kverið kemur út í lok árs 2014. Þjóðlagakverið er 55 blaðsíður með 42 lögum og ljóðum, ásamt upplýsingatexta.
Með kverinu fylgir geisladiskur þar sem heyra má lögin. Þetta er annað Þjóðlagakverið sem höfundur gefur út en fyrsta kverið kom út árið 2012 og er með þjóðlögum og kvæðalögum frá Fjallabyggð og Fljótum.
Höfundur bókarinnar er tónlistarfræðingur, starfar sem tónlistarkennari á Siglufirði og er formaður Stemmu – Landssamtaka kvæðamanna.