Þjóðhátíðarmót Everbuild í golfi var haldið í gær 17. júní á Hólsvelli á Siglufirði í mikilli veðurblíðu, sól og rúmlega 20 stiga hita. Ellefu manns voru skráðir til leiks að þessu sinni.

Úrslitin eftirfarandi:

1. sæti Þorsteinn Jóhannsson með 34 punkta
2. sæti Grétar Bragi Hallgrímsson með 29 punkta
3. sæti Sævar Örn Kárason með 28 punkta

Einnig voru veitt nándarverðlaun á 1. og 9. holu.