Knattspyrnufélag Fjallabyggðar hefur tilkynnt að daninn Daniel Kristiansen haldi áfram sem þjálfari liðsins út næsta tímabil hið minnsta. Daniel hefur þó tilkynnt að hann muni hætta sem leikmaður liðsins, en hann var spilandi þjálfari mestan hluta síðasta tímabil. Hann kom til liðsins árið 2022 frá Esbjerg og hefur leikið sem miðjumaður. Hann á 72 deildar- og bikarleiki fyrir KF og lék hann 13 deildarleiki í sumar með liðinu og skoraði þrjú mörk.

Hann tók við liðinu haustið 2024 þegar Halldór Guðmundsson hætti með liðið eftir fallið úr 2. deildinni.

KF rétt slapp við fall í deildinni í sumar og leikur í 3. deildinni næsta tímabil.