Þingeyjarsveit leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf slökkviliðsstjóra. Leitað er að einstaklingi sem hefur frumkvæði og aðlögunarhæfni að síbreytilegum aðstæðum og fjölbreyttum verkefnum. Slökkviliðssjóri heyrir beint undir sveitarstjóra. Umsóknarfrestur er til og með 8. ágúst 2024.
Slökkvilið Þingeyjarsveitar er vel tækjum búið og þar starfar öflugur hópur manna. Í sveitarfélaginu eru tvær slökkvistöðvar á Laugum og í Reykjahlíð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórn og ábyrgð á rekstri slökkviliðsins
- Ábyrgð á faglegri starfssemi, ráðningum, fræðslu og þjálfun slökkviliðsmanna
- Umsjón húsnæðis, tækja og bíla
- Umsjón með almennum brunavörnum og eldvarnareftirliti, úttektir, umsagnir og eftirfylgni
- Stjórn slökkvistarfs og mengunaróhappa á vettvangi
- Áætlanagerð og stefnumótun
- Samskipti við hagsmunaaðila innan og utan sveitarfélagsins
- Önnur verkefni í samráði við sveitarstjóra
Hæfniskröfur
- Löggilding sem slökkviliðsmaður sbr. 17. gr. laga nr. 75/2000 og að lágmarki eins árs reynsla í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður eða hafa háskólamenntun með sérmenntun í brunamálum.
- Hafa lokið námi sem eldvarnaeftirlitsmaður sbr. 12. gr. reglugerðar nr. 792/2001 um Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna.
- Stjórnunarreynsla og þekking á rekstri
- Reynsla og/eða haldgóð þekking á stjórnun slökkviliðs æskileg
- Þekking á yfirferð og eftirliti tækja og búnaðar æskileg
- Geta til að sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Leiðtogafærni og rík færni í mannlegum samskiptum
- Góð skipulagsfærni, árvekni og öguð vinnubrögð
- Vilji til þess að tileinka sér nýjungar í starfi
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni
Sótt er um á www.mognum.is
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is
Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna. Þingeyjarsveit áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.