Tennis- og Badmintonfélag Siglufjarðar hefur ráðið Ikmal Hussain Jaafar sem yfirþjálfara félagsins fyrir komandi tímabil og Önnu Maríu Björnsdóttir sem þjálfara. Félagið er gríðarlega ánægt með ráðningarnar og það eru spennandi tímar framundan og áframhaldandi uppbygging félagsins. Ikmal mun koma til landsins í byrjun september en þangað til mun Anna María hafa yfirumsjón með starfinu.
Anna María Björnsdóttir hefur starfað hjá félaginu til fjölda ára og hefur verið lykilpersóna í uppbyggingu félagsins og mun áfram miðla þekkingu sinni og reynslu til félagsins og iðkenda.
Ikmal er 32 ára og er frá Malasíu. Þrátt fyrir ungan aldur er hann með gríðarlega mikla reynslu en hann kom fyrst til Noregs árið 2015 og hefur starfað í Evrópu síðan, m.a. sem yfirþjálfari í Sandefjöld, Kristiansand og Heröy ásamt því að hafa verið landsliðsþjálfari Kýpur 2022-2025 en á síðasta ári var hann að vinna fyrir Gríska badmintonsambandið.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá TBS.