Ársfundur Síldarminjasafnsins var haldinn í morgun, mánudaginn 16. apríl. Farið var yfir ársskýrslu safnstjóra þar sem fram kom að árið 2011 hefði verið mjög gott í rekstri safnsins. Gestafjöldi ársins sló öll fyrri met, en tæplega 20.000 manns heimsóttu Síldarminjasafnið á síðasta ári, og er um að ræða 60% fjölgun frá árinu 2010.

Auk þess greiddi safnið niður eftirstöðvar skulda sinna frá uppbyggingu Bátahússins og er nú skuldlaust.
Á árinu 2011 var unnið að fjölmörgum verkefnum auk almenns reksturs. Bátasmíðaverkefni fór fram í Slippnum á haustdögum, Jónsmessuhátíð var haldin í júní, þónokkur viðgerð fór fram á Hlíðarhúsi og dyttað var að safnhúsunum. Eitt ánægjulegasta viðfangsefni Síldarminjasafnsins á síðasta ári var útgáfa bókarinnar Sögu úr síldarfirði í samvinnu við Uppheima.
Rafræn skráning safngripa í Sarp, menningarsögulegan gagnagrunn var einnig stór hluti af starfi síðasta árs. Á árinu 2011 voru skrásettar 62 nýskráningar þar sem hver skráning inniheldur einn eða fleiri fjölda gripa. Skráningar Síldarminjasafnsins í Sarp nálgast nú 200.
Á árinu 2012 liggja fyrir fjölmörg verkefni, en mikilvægasta verkefni ársins er frágangur safnlóðarinnar. Miklar breytingar urðu á umhverfi safnsins er nýr vegur var lagður síðasta haust. Á vordögum verður hafist handa við smíði bryggjupalla milli safnhúsanna þriggja, auk þess sem unnið verður að bættu aðgengi og fegrun svæðisins.

Texti: Sild.is

Ljósmynd: Héðinsfjörður.is