Guðmundur Gauti Sveinsson hefur opnað nýjan heimildarvef sem hann kallar “Svona var á Sigló – myndir & skjöl“. Gauti er einn af þeim sem hendir engu og hirðir allt. Hann hefur því safnað saman skjölum og skannað inn myndir og sett inná vefinn sem er hugsaður til að hýsa gamlar myndir og skjöl tengd Siglufirði. Myndirnar eru flestar teknar af foreldrum hans og fjölskyldu og eru frá árunum 1940 og til dagsins í dag. Skjölin eru tengd hljómsveitinni Gautunum, Karlakórnum Vísi, byggingarsögu Siglufjarðar, gamla bryggjuliðinu og frystihúsi Þormóðs Ramma og fleira.

Guðmundur Gauti hélt áður úti Skipa- og bátavefnum skoger.123.is þar sem hann birti fréttir og myndir af bátum og öðrum heimildum. Þá hefur hann einnig haldið úti podkasti í Fjallabyggð sem kallast Á tæpasta vaði.

Glæsilegt framtak hjá Gauta og verður gaman að fylgjast með nýju efni koma þarna inn.