Bein útsending verður í hljóði og mynd frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Sundlauginni í Ólafsfirði föstudaginn 29. ágúst kl. 20:00 í tilefni af 75 ára afmæli Sinfó. Frítt verður inn eftir kl. 19:45 og tónleikarnir hefjast kl. 20:00.

Tónleikarnir bera nafnið Klassíkin okkar og eru samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitarinnar og RÚV. Hljómsveitarstjóri er Bjarni Frímann Bjarnason.

Gestir: Ólafur Kjartan Sigurðarson, GDRN, Valdimar Guðmundsson, Rebekka Blöndal, Eggert Reginn Kjartansson, Sigurgeir Agnarsson, Pálmi Gunnarsson, Dísella Lárusdóttir og Söngsveitin Fílharmónía.

Kynnar: Halla Oddný Magnúsdóttir og Guðni Tómasson.