SÝNING UM HEILAGAN FUGL var opnuð í Listasafninu á Akureyri 16. maí sl. og stendur til 6. september. Listasafnið er í Listagili svonefndu gegnt kirkjutröppunum. Í kynningu frá safninu segir:
Örlygur Kristfinnsson fæddist á Siglufirði árið 1949. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1969-73 og var hans aðaláhersla lengi á málverkið en í seinni tíð hafa vatnslitir tekið við. Örlygur sýnir hér vatnslitamyndir, leirverk og innsetningar úr fjörugripum.
Í aldarfjórðung gengdi hann stöðu forstöðumanns og sýningahönnuðar á hinu margverðlaunaða Síldarminjasafni Íslands. Hann hefur einnig staðið fyrir endurgerð gamalla húsa, og er höfundur bóka um mannlíf á síldarárunum.
Örlygur hefur alla tíð verið mikill fuglamaður; stundaði fuglaskráningar, safnaði eggjum sem drengur og ætlaði þá að verða fuglafræðingur, en myndlistin varð yfirsterkari. Í nær hálfa öld hefur hann lagt stund á æðarrækt, en það krefst náins sambýlis fugls og manns. Síðustu árin hefur margskonar fiðurfénaður verið þaulsetinn í verkum hans.
Á sýningunni sjáum við geirfuglinn sem tákn fyrir óteljandi lífverur í útrýmingarhættu, stórar og smáar. Geirfuglinn var algengur við Norður-Atlantshaf, ófleygur og því auðveld bráð. Með landnámi Evrópumanna í Norður-Ameríku var fuglinum slátrað af miklu miskunnarleysi. Síðustu geirfuglar á Jörðinni voru drepnir á Eldey við suðvesturströnd Íslands 3. júní 1844 – í þágu kaupmanna og náttúrugripasafnara. Æ síðan hefur samviskubits gætt í þjóðarsál Íslendinga vegna þessa atburðar. Aldauði geirfuglsins varð á vissan hátt kveikja að skipulegum aðgerðum til verndar viðkvæmum dýrategundum og hafði þannig víðtæk áhrif á þróun náttúruverndar.
Örlygur tileinkar sýninguna eiginkonu sinni, Guðnýju Róbertsdóttur, sem lést 6. febrúar 2026.
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir.

