Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands var haldinn 10. maí síðastliðinn á Greifanum á Akureyri. Dagskrá var samkvæmt skipulagsskrá. Kynning var á verkefnum ársins 2015 á fundinum.

Stjórnarkjör fór fram og var kosið í eina stöðu aðalmanns á Norðurlandi vestra og eina stöðu á Norðurlandi eystra.

Aðalmenn: Svanhildur Pálsdóttir Hótel Varmahlíð(Kosin 2015), Gunnar Jóhannesson Fjallasýn(Kosin 2015), Njáll Trausti Friðbertsson Sæluhúsum(Kosin 2015). Ný kjörin í stjórn eru Sigríður María Róbertsdóttir Sigló Hótel(Kosin 2016) og Sigríður Káradóttir Gestastofu Sútarans(Kosin 2016). Varamenn: Þórdís Bjarnadóttir Höldur Bílaleiga og Unnur Valborg Hilmarsdóttir Sólgarður Apartments.

large_sigridur-svana-sigridur-gunnar-thordis