Í júní var leitað verðtilboða hjá nokkrum verktökum í lengingu Lækjarvalla að Kirkjuvegi á Grenivík, sem er vinna við jarðvegsskipti og lagnir og er hluti af fyrri hluta verkefnis. Þrjú tilboð bárust sem hljóðuðu þannig:

  • G V Gröfur ehf. kr. 17.340.000 eða 93% af kostnaðaráætlun.
  • Steypustöðin Dalvík ehf. kr. 14.770.000 eða 79% af kostnaðaráætlun.
  • Finnur ehf kr. 25.045.000 eða 134% af kostnaðaráætlun.

Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á kr 18.740.000 = 100%.

Samþykkt var að taka tilboði Steypustöðvarinnar Dalvík sem var langlægsta boðið í verkið.

Áformað er að verkið verði unnið í september.

Reiknað er síðan með að gatan verði fullfrágengin og malbikuð á næsta ári.