Snjóalög eru mjög takmörkuð í Ólafsfirði og hafa því stjórnendur Fjarðargöngunnar ákveðið að reyna færa gönguna upp á Lágheiði, en það er um 20 mínútna akstur frá Ólafsfirði. Fjarðargangan fer fram 13.-14. febrúar 2026 og er 40 ára afmæli göngunnar í ár.
Stefnt er að hafa 5 km hring og bjóða upp á 5 km, 10 km og 20 km göngur á mótinu, auk Barnagöngu fyrir þau allra yngstu. Snjótroðarinn er kominn upp á heiði og er unnið að því að gera braut þar. Reynt verður að gera umgjörð og stemningu sem besta á svæðinu.