Síldarminjasafnið á Siglufirði fékk nýverið góða heimsókn frá starfsmönnum á Þjóðminjasafni Póllands í Gdańsk.
Heimsóknin er hluti af evrópsku samstarfsverkefni sem ber heitið Obieg Wody eða Hringrás vatns, og Síldarminjasafnið á Siglufirði er þátttakandi í.
Verkefnið sameinar list, menningararf og umhverfismál. Ungir pólskir listamenn hafa skapað innsetningar innblásnar af sögu hafsins, strandmenningu, handverki og áhrifum loftslagsbreytinga.
Afrakstur verkefnisins verður sýndur í Síldarminjasafninu á Siglufirði síðar í júlímánuði.