Covid-19 smit hefur verið staðfest hjá starfsmanni í Lundarskóla við Dalsbraut á Akureyri.
Að kröfu sóttvarnalæknis og til að gæta fyllsta öryggis þurfa nemendur í 1.-6. bekk að vera heima meðan á smitrakningu stendur eða að öllu óbreyttu til fimmtudagsins 1. október nk. Lundarskóli við Dalsbraut verður því lokaður næstu daga.
Starfsmaðurinn sem um ræðir hafði ekki verið í snertingu eða samskiptum við nemendur frá því hann var útsettur fyrir smiti og því er hér fyrst og fremst um varúðarráðstöfun að ræða.
Skólastarf 7.-10. bekkjar Lundarskóla, sem fer fram annars staðar í bænum, raskast ekki og heldur áfram óbreytt.
Nánari upplýsingar veitir Karl Frímannsson, sviðsstjóri fræðslusviðs Akureyrarbæjar, í síma 862 8754.