Starfsemi Karlakórs Fjallabyggðar hefst að nýju mánudaginn 23. janúar næstkomandi klukkan 19:00.  Kórstarfið hefur legið niðri frá því að Covid-19 faraldurinn hófst.
Í tilkynningu frá kórnum kemur fram að fjöldi núverandi kórfélaga hefur nú þegar staðfest þátttöku sína sem og nýir félagar.  Eldri félagar eru hjartanlega velkomnir í kórinn.
Karlakór Fjallabyggðar hefur fengið til liðs við sig tvo nýja stjórnendur, þau Eddu Björk Jónsdóttir kórstjóra og Guðmann Sveinsson sem mun sjá um hljómsveit kórsins.
Áhugasamir nýliðar eru boðnir sérstaklega velkomnir.
Kórfélagar eru beðnir að taka með sér nóturnar, byrjað verður á léttu spjalli og upprifjun.
Æfingar fara fram í Tónlistarskólanum á Tröllaskaga við Aðalgötu 27 á Siglufirði.
Sjá viðburð á Facebook hér: