Fjallabyggð gerir ráð fyrir að fjárfestingageta sveitarfélagsins nemi um 522 milljónum króna fyrir árið 2026 og einnig er gert ráð fyrir lántöku á allt að 400 milljónum sem að hluta er gert ráð fyrir að færist á árið 2027 til fjárfestinga.  Gert er ráð fyrir því að ríflega 20 milljónum meira verði varið í viðhald á árinu 2026 en áætlað var á árinu 2025 og er sérstök áhersla á skólahúsnæði bæði grunnskóla og leikskóla.

 

Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur samþykkt að farið verði í eftirfarandi stærri framkvæmdir á árinu 2026:

  •  Uppbygging þjóðvegar í gegnum Ólafsfjörð ásamt gangstéttarframkvæmdum
  •  Endurbætur á lagna- og tæknirými í sundlauginni á Siglufirði
  •  Uppbygging knatthúss á æfingasvæði KF í Ólafsfirði
  •  Viðbygging við leikskólann í Ólafsfirði
  •  Endurbætur á skólahúsnæði við Norðurgötu á Siglufirði
  •  Malbikun á Ránargötu og við kirkjugarð við Saurbæjarás
  •  Framkvæmdir við nýjan kirkjugarð í Ólafsfirði
  •  Framkvæmdir við Skálarhlíð, múrviðgerðir, endurnýjun eldhúss og fleira
  •  Framkvæmdir við vatnsveitu í Ólafsfirði og eftirlitskerfi vatns- og fráveitu í báðum byggðarkjörnum
  •  Gangstéttarframkvæmdir í báðum byggðarkjörnum
  •  Frágangur á tjaldsvæðinu í Ólafsfirði
  •  Hönnun á göngustígum í Ólafsfirði og malbikun og lýsing á göngustíg við ósinn í Ólafsfirði
  •  Auk þessa ýmis smærri verkefni