Staða skólastjóra við Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit er laus til umsóknar frá og með 1. ágúst 2025. Leitað er að öflugum og framsýnum leiðtoga sem er tilbúinn til að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í öflugu skólasamfélagi. Umsóknarfrestur er til og með 25. mars nk.
Reykjahlíðarskóli er í Reykjahlíð í Mývatnssveit. Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með tæplega 50 nemendur í grunnskóladeild og um 25 nemendum í leikskólanum Yl. Áhersla er lögð á og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra.
Starfssvið skólastjóra:
– Ábyrgð á rekstri skólans og daglegri starfsemi
– Fagleg forysta á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
– Ábyrgð á samstarfi við heimili og samfélag
Menntunar- og hæfniskröfur:
– Umsækjandi skal hafa leyfi til að nota starfsheitið kennari og reynslu af kennslu á grunnskólastigi.
– Viðbótarmenntun á sviði stjórnunar er æskileg.
– Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er kostur.
– Hæfni í mannlegum samskiptum.
– Metnaður, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar.
Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra sýn í skólamálum, er metnaðarfullur, skapandi og áhugasamur um nærsamfélagið. Skólastjóri skal vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi. Hann starfar í nánu samstarfi við sviðsstjóra og aðra stjórnendur sem heyra undir fjölskyldusvið og tekur þátt í verkefnum sem snúa að þróun í skólamálum í Þingeyjarsveit. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Ásta F. Flosadóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma 512 1803 og á netfangið asta.flosadottir@thingeyjarsveit.is.
Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum ásamt kynningarbréfi og afriti af leyfisbréfi skal skila í tölvupósti á netfangið umsokn@thingeyjarsveit.is.