Í dag tóku nemendur í unglingadeild Grunnskóla Fjallabyggðar við styrk að upphæð kr. 100.000 frá Sparisjóði Siglufjarðar.  Afmælisnefnd Sparisjóðsins afhenti styrkinn í tilefni af 140 ára afmæli Sparisjóðs Siglufjarðar.

Sparisjóðurinn ásamt fleirum aðilum í Fjallabyggð gerðu það mögulegt að nemendur og stuðningsmenn úr Grunnskóla Fjallabyggðar gætu komist á Skólahreystikeppninga í Reykajvík þann 2. maí s.l. Lið Grunnskóla Fjallabyggðar náði þar 11. sæti.

SPS 140 ára

Mynd frá www.fjallaskolar.is