Söngsveitin Fílharmónía, er að koma til Siglufjarðar helgina 16.-18. maí. Magnús Ragnarsson stjórnar kórnum og eru meðlimir 65 talsins. Það verða fleiri en fimmtíu söngvarar með í þessarri söngferð, enda almennt mikil tilhlökkun í hópnum yfir að heimsækja Norðurlandið fagra og syngja fyrir íbúa Tröllaskaga, Eyfirðinga og Akureyringa.

Kórinn er að undirbúa sig undir kórakeppni í Llangollen, Wales, í júlí næstkomandi og verður því svipuð efnisskrá flutt á tónleikunum og verða í keppninni. Á efnisskránni, sem er býsna fjölbreytt, eru bæði íslensk og erlend verk, svo sem eftir norska tónskáldið Ola Gjeilo, Randall Z. Stoope, Báru Grímsdóttur, Gunnstein Ólafsson og Þóru Marteinsdóttur (sem syngur einmitt með kórnum) svo fátt eitt sé nefnt.

Tónleikarnir verða sem hér segir:
 

  • Siglufjarðarkirkja: Laugardagur 17. maí kl 17.00. Miðaverð er 1500 kr.
  • Akureyrarkirkja: Sunnudagur 18. maí kl 16.00, ásamt Kór Akureyrarkirkju, sem er stjórnað af Eyþóri Inga Jónssyni.

Heimasíða kórsins er http://filharmonia.is/.

filaharmonia

 

 

 

 

 

 

 

Texti og mynd: Innsent efni.