Föstudaginn 10. apríl og laugardaginn 11. apríl fer fram snjósleðamót í Ólafsfirði. Af þeim sökum verður aðkeyrsla að íþróttahúsinu og grunnskólanum lokuð frá kl. 8:00 á föstudagsmorgni og þar til móti lýkur síðdegis á laugardag.

Á föstudaginn mun skólarútan fara frá Olís planinu. Foreldrar yngstu barnanna eru beðnir um að fylgja þeim í og úr rútunni.

Fólk verður á staðnum til að gæta umferðar milli plansins og skólans þannig að þau börn sem fara á æfingar í íþróttahúsinu eftir hádegi komist örugglega yfir götuna.

Bílastæði á svæðinu verða takmörkuð. Leiðinni milli MTR og grunnskólans verður þó haldið opinni vegna öryggismála, en ekki er ætlast til að hún verði nýtt sem aðkeyrsla að skólanum eða íþróttahúsinu.