Í dag, 24. desember má búast við hvassri sunnanátt með snörpum hviðum á Norðurlandi, þá einkum á Tröllaskaga, í Fljótum og á Öxnadalsheiði. Vindur getur náð allt að 20-28 m/s og hviður 35-45 m/s þangað til í fyrramálið, jóladagsmorgun. Einnig gætu vindhviður náð 30-35 m/s.
Aukin hætta á grjóthruni á Siglufjarðarvegi og þar er óveður.
Mikil hlýindi eru á Tröllaskaga í dag, en í kvöld var hitinn 17 gráður í Héðinsfirði, 15 gráður á Siglufirði og í Ólafsfirði og 16 gráður á Dalvík.