Smíðavellirnir í Fjallabyggð verða opnir í júní fyrir alla krakka á grunnskólaaldri. Fyrsti opnunardagur er miðvikudaginn 11.júní kl. 10-12. Smíðavellir verða starfræktir bæði í Ólafsfirði og á Siglufirði í nokkra daga í júní. Ekki þarf að skrá börnin og er þátttaka ókeypis. Börn sem sækja smíðavellina eru á ábyrgð foreldra og er frjálst að koma og fara á þeim tíma sem smíðavellir eru opnir.
Börn sem sækja smíðavelli fá timbur og nagla á staðnum en þurfa sjálf að koma með hamar og sög. Að námskeiðum loknum verður grillveisla á hvorum stað fyrir börn og foreldra.
Umsjón vallanna er í samstarfi við hestamannafélagið Gnýfara og Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg.
Smíðavellirnir á Ólafsfirði verða í umsjón hestamannafélagsins Gnýfara á Frímerkinu.
Smíðavöllurinn á Ólafsfirði verður opinn frá kl. 10:00-12:00 eftirfarandi daga: 11 – 13. júní, 18.-20. júní og 23. – 26. júní
Smíðavellirnir á Siglufirði verða í umsjón SSS á túninu við Mjölhúsið.
Smíðavöllurinn á Siglufirði verður opinn frá kl. 10:00-12:00 eftirfarandi daga: : 11- 13. júní, 16. júní og 18. – 20. júní.


