Slökkvilið Fjallabyggðar fékk tilkynningu um eld í ruslagámi á Ólafsfirði, fimmtudaginn 2. júlí. Lítil sem engin hætta var á útbreiðslu og eldurinn ekki búinn að ná sér á strik. Lágmarksviðbragð var sent á staðinn sem kláraði verkefnið fljótt og vel.

Þetta kom fram í tilkynningu frá Slökkviliði Fjallabyggðar ásamt ljósmyndum.