Slökkvilið Fjallabyggðar fékk í gærkvöld tilkynningu um eld á gámasvæðinu á Siglufirði. Slökkviliðsmenn fóru á vettvang og tryggðu að eldur gæti ekki breiðst út og slökktu þar sem hann var að myndast.
Aðgerðir tóku skamman tíma samkvæmt tilkynningu frá slökkviliðinu.