Slippurinn á Siglufirði er nýjasta viðbótin við safnaflóru Síldarminjasafns Íslands. Í Slippnum verður í senn sögusýning fyrir gesti og stundaðar bátasmíðar og viðgerðir eldri báta.

Í Slippnum á Siglufirði eru verkstæðishús og dráttarbraut ásamt lóð. Verkstæðið var byggt árið 1934 og er búið tækjum og verkfærum sem sum hver eru nær 100 ára gömul. Dráttarbrautin er frá því um 1930 og þar stendur bátur sem smíðaður var í Hafnarfirði árið 1943. Örlygur Kristfinnsson, safnastjóri Síldarminjasafnsins, segir stefnt að því að hafa Slippinn opinn fyrir safngesti á sumrin. Þar verði hægt að skoða sögusýningu um skipasmíðar í 200 ár auk þess sem þeir geti fylgst með nýsmíði og viðgerð á bátum.

Siglufjörður á sér merka skipasmíðasögu. Þar voru á 19. öld smíðaðar skonnortur til hákarlaveiða og síðar síldveiða. Í Slippnum var síðar stunduð bátasmíði og þjónusta við bátaflotann í 60 ár. Þetta er talin elsta smábátasmíðastöð landsins og jafnvel sú eina sinnar tegundar. Örlygur segir tilkomu Slippsins stækka safnið og víkka út starfsemina, en varðveisla hans hafi jafnframt mikla þýðingu fyrir þjóðminjavörsluna í landinu.

Heimild: Rúv.is

Ljósmynd: Héðinsfjörður.is