Einn viðburður kvöldsins á Síldarævintýrinu á Siglufirði var skrúðganga frá Ráðhústorgi og brenna á Norðurtanga. Fjöldi fólks elti slökkvilið Fjallabyggðar að brennunni. Tónlistaratriði verða á Ráðhústorginu frá kl. 21:00.
Klukkan 22:30 verður kveikt á blysum við Ráðhústorgið undir tröppum að Siglufjarðarkirkju.
Myndirnar tók Guðmundur Ingi Bjarnason.







