Kaffa Klara í Ólafsfirði stendur fyrir skötuveislu í hádeginu í dag, föstudaginn 19. júlí. Einnig verður í boði nætursaltaður fiskur á sama tíma. Skötuaðdándur þurfa því ekki að bíða fram í desember, heldur er hægt að mæta beint á Kaffi Klöru.
Þorláksmessa á sumri er 20. júlí og var lögleidd 1237 til að minnast þess að þann dag 1198 voru bein Þorláks tekin upp til að nýtast til áheita. Var sumarmessa þessi ein mesta hátíð ársins á Íslandi fyrir siðaskipti.