Vegna tilmæla frá Norðurorku er sundlaugin í Ólafsfirði lokuð um óákveðinn tíma eða þar til annað verður tilkynnt.
Ástæðan er skortur á heitu vatni í Ólafsfirði. Dúkur hefur verið dreginn yfir sundlaugina.
Opið er í heita potta, líkamsrækt og Íþróttahúsið í Ólafsfirði samkvæmt auglýstum tíma.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjallabyggð.