Nýir eigendur af gamla gagnfræðiskólahúsinu við Hlíðarveg á Siglufirði hafa óskað eftir að nýta húsið sem fjölbýlishús og er gert ráð fyrir að 14 íbúðir rúmist þar. Fyrirhugað er að byggja kvist á risið og nýta það fyrir tvær íbúðir. Húsið er skráð 1535 fermetrar.

Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar hefur samþykkt breytta notkun á húsinu og mun í framhaldinu grenndarkynna aðliggjandi lóðarhöfum á Siglufirði tilvonandi breytingar.

grunnskolinn