Allt skólahald í leik- og grunnskólum í Skagafirði fellur niður sem og frístund á morgun, fimmtudaginn 6. febrúar. Þá verða einnig allar sundlaugar í Skagafirði lokaðar á morgun vegna veðurs.
Aðgerðastjórn Almannavarna (AST) á Norðurlandi vestra hefur verið virkjuð og mun starfa á meðan veðrið gengur yfir.
Íbúar eru hvattir til að tryggja lausamuni og sýna aðgát á meðan veðrið gengur yfir.