Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð hafa fellt niður skólaakstur niður í dag, föstudaginn 2. nóvember vegna veðurs og versnandi veðurs. Í ljósi þess að samgöngur verða ótryggar í dag hefur verið ákveðið að fella niður kennslu í Menntaskólanum á Tröllaskaga en nemendur læra sjálfstætt skv. áætlun og upplýsingum í kennslukerfinu Moodle.

Nemendum er velkomið að koma í skólann og læra en hvattir til að leggja ekki af stað lengri leiðir í óvissu um hvort þeir komist aftur heim.