Þann 29.apríl afhenti Atvinnu- og umhverfisnefnd Eyjafjarðarsveitar tvenn umhverfisverðlaun, annarsvegar í flokki einstaklinga og hinsvegar í flokki atvinnustarfsemi.
Skógarböðin fengu verðlaun í atvinnustarfsemi og voru það frumkvöðlar Skógarbaðanna og stærstu eigendur, hjónin Finnur Aðalbjörnsson og Sigríður María Hammer, sem tóku við verðlaununum fyrir hönd þess. Skógarböðin þekkja flestir en aðkoma að þeim og umgjörðin öll er til mestu fyrirmyndar.
Vilborg Þórðardóttir að Ytra-Laugalandi fékk verðlaun í hópi einstaklinga. Atvinnu- og umhverfisnefnd Eyjafjarðarsveitar fékk fjölda ábendinga um dugnað Vilborgar og þann metnað sem hún hefur við að halda umhverfi sínu fallegu og snyrtilegu og taldi nefndin hana vel til verðlaunanna komin.