Skipverjinn af Múlabergi SI 22, sem saknað hefur verið síðan í fyrradag, hét Gunnar Gunnarsson og var frá Dalvík. Hann var fæddur árið 1962 og lætur eftir sig sambýliskonu, tvær stjúpdætur, móður og fjögur systkini.

Gunnar starfaði um árabil sem skipstjóri og stýrimaður hjá útgerðarfélaginu Ramma hf á Siglufirði.

Fjölskylda og aðstandendur Gunnars vilja koma á framfæri hjartanlegu þakklæti til allra þeirra sem komu að leit á sjó og úr lofti síðustu tvo daga.