Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Dalvík, Siglufirði eða Tindastóli geta skíðað á svæðunum helgina 28-29 janúar, þar sem fyrsta skiptihelgin verður að veruleika. Vetrarkortin gilda því á öllum þessum svæðum um næstu helgi !
Vetrarkortshafar framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þar helgarpassa. Þetta verður fyrsta skiptihelgin af þremur sem boðið verður uppá í vetur.