Hafin er vinna Vegagerðarinnar og verktaka við útskipti varaaflgjafa í Héðinsfjarðargöngum og mun sú vinna standa yfir í um það bil fjórar vikur, eða fram í lok nóvember. Að loknum framkvæmdum verður tekið í notkun öflugra og áreiðanlegra varaaflskerfi, sem mun auka rekstraröryggi og afhendingaröryggi raforku í göngunum til framtíðar.

Í tengslum við vinnuna getur komið til tímabundins rafmagnsleysis á afmörkuðum köflum ganganna, að jafnaði á 2–3 km svæði í senn. Á framkvæmdartímanum verður takmarkað varaafl til staðar og undir lok verkefnisins, áður en nýtt kerfi verður tekið í notkun, verður ekkert varaafl í göngunum í um eina viku.